Jæja, ég vil þakka öllum kærlega fyrir daginn 
Ég var alsæl hvað þið mættuð vel og voruð glæsilegar í Þróttarabúningnum 
Í dag voru veitt verðlaun fyrir bestu ástundun fyrir yngra og eldra ár.
Í dag fengu 3 stúlkur verðlaun og má hrósa þeim fyrir frábæra mætingu því þær voru með 97% mætingu fyrir allt síðasta ár 
Vel gert stelpur 
Eldra ár:
Sigrún María og Þórkatla María
Yngra ár:
Írena Þula
Þar sem við lukum síðasta tímabili í dag að þá ákvað ég að taka saman smá samantekt fyrir síðasta tímabil:
6.
flokkur kvenna, tímabilið 2008 - 2009.
1. október 2008 tók nýr
þjálfari,Eva Björk Ægisdóttir, til starfa hjá félaginu og tók hún við 5. og 6. flokki
kvenna.
6. flokkur kvenna var í upphafi myndaður af 19 stúlkum, 15 á eldra ári og 4 á
yngra ári, en núna ári seinna samanstendur flokkurinn af 26 stúlkum, 13 á eldra
ári og 13 á yngra ári.
Í upphafi tímabils var
markmiðið að ná inn fleiri iðkendum sem æfðu markvissara á ársgrundvelli og
tókst það vel.
Verkefni flokksins samanstóðu
af æfingaleikjum, litlum æfingamótum, dósasöfnun, Þróttaramótinu, Hnátumótum,
Siglufjarðarmótið, ýmsum fjáröflunum og verkefnum leikmanna sem spiluðu
uppfyrir sig.
Í byrjun júní hélt Þróttur
sitt árlega mót. Mikil stemning myndaðist í röðum Þróttara og mættu frá Þrótti
21 stúlka sem spiluðu í þremur liðum.
C-liðið náði 5. sæti á mótinu.
Hópurinn fór svo að sjálfsögðu í sína árlegu ferð til Siglufjarðar þar sem það má með sanni segja að Þróttur hafi stolið
senunni. Mótið var haldið að venju aðra helgina í ágúst í blíðskaparveðri og
mættu frá Þrótti c.a. 200 manns með foreldrum og systkinum stúlknanna.
Stemningin var ákaflega góð og þá sérstaklega lokadaginn þar sem B-lið
flokksins tapaði naumlega 1-0 fyrir HK í úrslitaleik B-liða.
Stelpurnar fóru sárar af leikvelli en tóku stoltar við silfurverðlaununum fyrir
framan fjölda manns og góður árangur B-liðsins staðreynd.
C-lið Þróttar endaði svo í 4. sæti eftir að hafa tapað tveim hlutkestum, fyrst
í undanúrslitum um að komast í úrslitaleik og svo aftur í leik um 3. sætið.
Úrslitakeppni C-liða var svo
haldin 15. ágúst
KSÍ hélt sitt árlega Íslandsmót í júlí, sem heitir Hnátumót KSÍ, og stóðu
stúlkurnar frá Þrótti sig mjög vel. (Í júlí var undankeppnin og sigurvegarar
riðlanna taka svo þátt í lokakeppni (úrslitakeppni) sem er alltaf haldin í
ágúst ár hvert).
Þróttur skráði þrjú lið til leiks og stóð upp úr að C-lið flokksins tók sig til
og sigraði sinn riðil sannfærandi með markatöluna 11-3 og komst í úrslitakeppni
C-liða sem haldin var 15. ágúst.
Þær tóku sig svo til og sigruðu úrslitakeppnina sannfærandi með markatöluna
12-3 eða samanlagt 23-6, með undankeppninni, sem haldin var í júlí.
Til gamans má segja frá því að þessar sömu stúlkur, sem allar eru á yngra ári, byrjuðu
flestar að æfa á tímabilinu.
Þær unnu varla leik í vetur og áttu í miklum erfiðleikum framan af, lentu í 5.
sæti C-liða á Þróttaramótinu og má því með sanni segja að framfarir hópsins
hafi verið langt fram úr væntingum.
Íslandsmeistarar C-liða staðreynd !
21. september síðastliðinn
var Reykjarvíkurmótið haldið.
Frá Þrótti mættu 23 stúlkur sem spiluðu í þremur liðum.
Árangur stelpnanna í heild sinni var góður en það sem upp úr stóð var að U-9
ára lið Þróttar tók sig til og unnu U-10 ára, b-liða.
Reykjarvíkurmeistarar U-10 ára,
B-liða staðreynd !
Það sem stóð upp úr starfi flokksins á árinu var hvað leikmenn, foreldrar og þjálfarar náðu vel saman.>
Það voru margir áfangar sigraðir á árinu hvort sem það var innan- eða
utanvallar.
Við náðum að jafna út fjölda árganganna og ná inn stelpum sem æfa vel á
ársgrundvelli.
Verkefni voru fundin handa þeim sem æfðu vel og sköruðu fram úr og má nefna að
einn leikmaður flokksins (Þórkatla María) æfði að staðaldri með 5. flokki kvenna og skoraði yfir
20 mörk fyrir flokkinn á síðasta tímabili, þar af 7 mörk í síðustu þremur
leikjum flokksins í Íslandsmótinu, í 5. flokki B-liða.
>
Flottur hópur þarna á ferð og með frábæra foreldra að baki og má því með sanni segja að framtíðin sé björt í kvennastarfi Þróttar 
Kveðja
Eva Björk